Heilbrigt líf - 01.06.1941, Page 23

Heilbrigt líf - 01.06.1941, Page 23
auk steypu. Við höfum meira að segja gleymt honum svo gersamlega öldum saman, að þegar hann nú á allra síðustu árum er að byrja að ná fótfestu aftur í landinu, þá þarf, til þess að nokkur kannist við, hvað við er átt, að kenna hann við þá þjóð, sem hjelt honum óbreyttum í aldaraðir og sótti í hann heilsu og þrek. Það er full ástæða til að kynna landsmönnum hann aft- ur, sjerstaklega þegar þess er gætt, að hann hefir enn sem fyrr, sökum fjölbreytilegra mótunarmöguleika sinna, bestu skilyrði til þess að verða aftur almenningseign. Jafnvel miklu betri skilyrði til þess, heldur en kerlaugar- baðsiðurinn. Ekki skal metast um það, að hann veitir betra og fullkomnara bað, og meiri nautn og hressingu í sinni fullkomnu mynd, heldur en kerlaugarnar, heldur aðeins litið á það, að gufubaðstofa kostar oft sára- lítið og aldrei neitt svipað og baðherbergi með öllum nýtískuáhöldum. Jafnvel rekstrarkostnaður getur orðið hverfandi lítill, ef góð skilyrði eru fyrir hendi, og þau eru víða til; því að nú er, sem betur fer, ólíkt meira um eldi- við og aðra hitaorku heldur en var, þegar gufubaðsiður- inn lagðist niður og dó út með þjóð vorri. III. Finnsk baðstofa, „sauna“. „Bæti ei baðstofan, er bani vís“. Bak við þetta gamla finnska orðtæki, sem hljómar glettnislega í vorum eyrum, felst meiri alvara hjá Finn- um heldur en útlendinga órar fyrir. Þetta verður þó skilj- anlegt, þegar menn kynnast hlutverki baðstofunnar í þjóð- lífi þeirra. Það er miklu víðtækara en að losa notendurna við óhreinindi líkamans einu sinni í viku. Baðstofan er jafnframt sjúkrahús heimilisins í viðlög- um, og fæðingarstofnun. Hún er helgur staður. Þar inni má ekki blóta. Þegar kona tekur ljettasótt, er hún flutt í baðstofuna. Þar elur hún barn sitt og sefur fyrst á eftir. Heilbrigt líf 21
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Heilbrigt líf

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilbrigt líf
https://timarit.is/publication/1835

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.