Ferðir


Ferðir - 01.03.1940, Page 12

Ferðir - 01.03.1940, Page 12
10. blaðsíða [Ferðir Frá ferðanefndinni. Félagar Ferðafélags Akureyrar. Félagið okkar er ungt, en hefur vaxið ört — stofnað 8. apríl 1936 og telur nú rúmlega 300 félaga. — Aðalstarf- semin hefur verið að stofna til og standa fyrir skemmti- ferðum. Árið 1936 voru farnar 4, 1937 farnar 9, 1938 farn- ar 18 og 1939 farnar 22 ferðir. Ferðir þessar hafa náð þeim tvígilda tilgangi, að vera bæði skemmtandi og fræðandi. En þær hafa kostað þó nokkurt fé, og nú þegar dýrtíð og atvinnukreppa gengur yfir, sem hlýtur að valda fjárhagserfiðleikum almennt, þá verður meiri vandi en áður að halda ferðastarfseminni áfram, að fá fleiri til þátttöku og meiri tilbreytni í starf- inu, án þess að sú skemmtun og fræðsla, sem fæst, verði dýru verði keypt. Með athugun á þessum aðstæðum ei ferðaáætlun félagsins samin og er dregið nokkuð úr bif- reiðaferðum, frá því sem var s. 1. sumar, og lengstu ferð- irnar eru teknar eftir framkomnum óskum. í fjórum fyrstu ferðunum er gert ráð fyrir, að nota skíði. Er það bæði til að gera ferðirnar skemmtilegri, og til að auka þekkingu á þessum skemmtilegu farartækjum, skíðunum. Tvær næstu ferðir eru gönguferðir á fjöllin vestan við bæinn. Mun mörgum það metnaðarmál, að hafa gengið á fjallið yfir bænum sínum, og vita hvað þaðan sézt. Þegar vegir batna skiftist á að ferðast verður á reið- hestum, reiðhjólum og bifreiðum, og jafnframt farnar gönguferðir. Þá viljum vér sérstaklega vekja athygli á ferðunum í Hafrárdal. Á s. 1. hausti hóf F. F. A. vegagerð á hinni fornu leið Eyfirðinga upp úr Eyjafirði um Hafrárdal, suður Vatna- hjalla. Fram-Eyfirðingar veittu strax drengilega liðveizlu. Unnar voru samtals 820 vinnustundir, en áætlað er að

x

Ferðir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ferðir
https://timarit.is/publication/1888

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.