Ferðir


Ferðir - 01.03.1940, Blaðsíða 6

Ferðir - 01.03.1940, Blaðsíða 6
4. blaðsíða [Ferðir þeim, er liggja suður frá vesturhorni Bæjarf'jalls1 og er þá brátt komið suður á jaðar Hólasands, fylgja síðan sand- brúninni alllangt suður með Gœsafjöllum, en beygja síð- an upp að þeim sunnanverðum, er þá komið í mynni Gœsadals, sem er einkennilegur sprungu- eða sigdalur, umgirtur háum hömrum, vestanvert við suðurenda fjall- anna. í dalnum eru 2 dálítil vötn og er sérkennilegt og fallegt við þau. Suður úi Gæsadalnum má svo fara um Víðidal og Slý til Mývatns. Þetta getur verið skemmtileg gönguleið og má ganga á Gæsafjöll í leiðinni, ef tími er til. Önnur þægileg gönguleið til byggða, frá Þeistareykjum, er niður að Geitafelli. Er þá fyrst haldið vestur að Lambafjöllum og suður með þeim og í gegnum skarð, norðan við syðsta hnjúk fjallanna, sem nefnist Gusti og er skarðið heitið eftir hnúknum og kallað Gustaskarð. Þegar komið er upp í ákarðið, sem er nokkuð bratt, blasir við einstakur hnúkur, sem heitir Þverárhyrna, dálítið vestar og er farið norðan við hann og síðan nokkurnveg- inn beina leið í vestur niður að Geitafelli. Leið þessi er varla ýfir 20 km. löng. i í góðu veðri er dásamlega fagurt á Þeistareykjum, einkum í nánd við sólstöður á vorin. Sólin gengur þá ekki undir, en allt umhverfið vafið í grasi, því á Þeistáreykj- um grær snemma og vel vegna jarðhitans. Sérstaklega er þá heillandi að vera þar um miðnæturbilið 1 kyrru veðri, þegar sólin situr við háfsbrún og geislarnir varpa alls- konar litbrigðum á hálfgegnsæja gufustrókana, sem stíga hægt og rólega upp af hverasvæðunum, en döggin glitrar um allar grundir.

x

Ferðir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ferðir
https://timarit.is/publication/1888

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.